Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Björgunarsveitir á Suður- og Vesturlandi brugðust við tveimur útköllum í tengslum við útivist í gær, annars vegar vegna reiðslyss í Borgarfirði og hins vegar vegna gönguslyss í Þórsmörk. Innlent 16.6.2024 08:20
Björguðu hesti úr sjálfheldu í Skagafirði Þrír straumvatnsbjörgunarmenn á vegum Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveit björguðu í kvöld hesti úr sjálfheldu á sandhólma á Héraðsvötnum í Skagafirði. Innlent 11.6.2024 22:44
Húsbóndinn á Árbakka hafði aldrei heyrt um þriðju vaktina Óhætt er að segja að líf fjölskyldunnar á hestabúgarðinum á Árbakka snúist í kringum hesta. Hestamennskan sameinaði þau á áttunda áratugnum. Lífið 3.6.2024 15:00
Stóðhesturinn Vísir elskar saxófónleik Stóðhesturinn Vísir, sem er einn besti tölthestur landsins er vandlátur á tónlist en þegar hann heyrir spilað á saxófón þá fer hann í sitt allra besta formi og stuð og töltir eins og engin sé morgundagurinn. Innlent 21. apríl 2024 20:31
Draumur Stígs rættist með stóðhestinum Steini Stóðhesturinn Steinn frá Stíghúsi vakti verðskuldaða athygli um síðustu helgi er hann safnaði 500 þúsund krónum fyrir stuðningsfélagið Einstök börn. Hann vakti þó ef til vill meiri athygli fyrir KR-ljómann í kringum sýningu hans, en við það rættist ósk eiganda hestsins. Sport 18. apríl 2024 08:00
Um 800 manns mættu á Stóðhestaveislu Um átta hundruð manns mættu í Ölfushöllina á Ingólfshvoli í gærkvöldi til að sjá allra flottustu stóðhesta landsins spretta úr spori og kynna sig fyrir sumarið. Ellefu og tólf ára frænkur stálu hins vegar senunni á sýningunni þar sem þær gáfur ekki tommu eftir í reiðmennskunni. Lífið 14. apríl 2024 20:30
Virkilega spennandi lokamót framundan Lokamót Meistaradeildar Líflands fer fram föstudaginn 12. apríl næstkomandi í HorseDay höllinni Ingólfshvoli. Keppt verður í Tölti T1 og Flugskeiði í gegnum höllina ásamt því að í ljós kemur hverjir það verða sem standa uppi sem sigurvegarar Meistaradeildarinnar 2024. Lífið samstarf 10. apríl 2024 15:24
Ekki nægar ástæður til að afturkalla starfsleyfi Ísteka Matvælastofnun telur ekki nægar málsástæður til að afturkalla starfsleyfi Ísteka og mun starfsemi fyrirtækisins halda áfram á grundvelli leyfis sem gildir til októbermánaðar 2025. Innlent 9. apríl 2024 14:55
Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Mótaröð Meistaradeildar Líflands er hálfnuð nú þegar fjórar keppnir er búnar og spennan magnast með hverju mótinu. Samstarf 27. mars 2024 15:04
Grétu og viðurkenndu mistök á erfiðum fundi Baltasar Kormákur bindur vonir við að hægt verði að fá íslenska reiðmenn til að taka við af spænsku þjálfarateymi, sem uppvíst varð að illri meðferð á hrossum við kvikmyndaframleiðslu Baltasars. Þjálfarateymið hafi viðurkennt mistök á erfiðum fundi, þar sem hópnum var sagt upp störfum. Innlent 25. mars 2024 20:30
Baltasar sleginn yfir hestamálinu Baltasar Kormáki og hans teymi var verulega brugðið þegar þeim barst veður af hrottafenginni meðferð hesta sem verið var að þjálfa fyrir kvikmyndaverkefni þeirra. Hann segir þjálfarana hafa verið rekna um leið og upp komst um málið. Innlent 23. mars 2024 14:12
Hestamisþyrmingar fyrir íslenska kvikmyndaframleiðslu Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið sérstaka þjálfun á hestum til þátttöku í kvikmyndaframleiðslu vegna hrottalegrar meðferðar. Alvarleg atvik sjást á myndbandi sem er í dreifingu á Facebook. Spænskir atvinnumenn með mikla reynslu af hestaþjálfun voru fengnir í verkið, en í myndbandinu sjást þeir berja hestana í hausinn og sýna mjög harkalega reiðmennsku. Búið er að reka þjálfarana og alla sem komu að málinu. Innlent 23. mars 2024 11:37
Barn flutt með þyrlu eftir hestaslys Þyrla Landhelgisgæslunnar var í dag kölluð út vegna hestaslyss í uppsveitum Árnessýslu, sem þótti þá vera alvarlegt. Barn hafði þar lent í slysi. Innlent 16. mars 2024 14:57
Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum glæsileg að vanda Það má segja að Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum sé hápunktur hestamennskunnar á þessum árstíma þótt við flóruna hafa bæst margar innanhúsdeildir undanfarin ár og eru haldnar víða um land. Samstarf 12. mars 2024 13:30
Tvær göngu- og hjólabrýr koma yfir Elliðaár í Víðidal Framkvæmdir vegna nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hófust í síðustu viku. Brúin rís í Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks. Þetta er önnur brúin sem byggð er á sama tíma í Víðidal. Innlent 2. mars 2024 12:48
Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Fimmgangur á fimmtudaginn. Lífið samstarf 26. febrúar 2024 11:38
Knapi kom sér í vandræði með því að keppa í Borat-sundskýlu Þrefaldi Ólympíuverðlaunahafinn Shane Rose misbauð mótshöldurum á hestamóti í Ástralíu um helgina. Knapar voru hvattir til að mæta í búningum en Rose fór heldur betur yfir strikið. Sport 19. febrúar 2024 08:31
Jakob Svavar og Skarpur sigruðu fyrsta mót Meistaradeildar Líflands 2024 Fyrsta keppniskvöldið í Meistaradeild Líflands fór fram í HorseDay höllinni fimmtudaginn 25. janúar síðastliðin þegar keppt var í fjórgangi. Frábær stemning var í Ölfusinu og létu gestir og keppendur ekki vetrar færðina á sig fá og var þétt setið í stúkunni. Lífið samstarf 5. febrúar 2024 12:19
Hestar eru með 36 til 44 tennur Tannheilsa íslenskra hesta er afar mikilvæg og því eru starfandi sérstakir hestatannlæknar hér á landi, sem hafa meira en nóg að gera. Innlent 28. janúar 2024 20:31
Spennandi vetur framundan í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Fyrsta mót af sex í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fer fram fimmtudaginn 25. janúar, í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Lífið samstarf 23. janúar 2024 09:42
Hestar háma í sig jólatré í Þorlákshöfn Það eru engu líkara en hestar í Þorlákshöfn séu meðvitaðir um hvað sé góð endurnýting því margir þeirra éta jólatré með bestu lyst. Innlent 21. janúar 2024 20:30
Vignir Jónasson lést af slysförum í Svíþjóð Vignir Jónasson, hestamaður sem ræktað hefur hesta við góðan orðstír í Svíþjóð, er látinn eftir alvarlegt slys í Laholm í gærkvöldi. Hann var 52 ára gamall. Innlent 15. janúar 2024 13:18
Ellefu ára stelpa fer daglega út að hlaupa með hrútinn Ástaraldin Einstakt samband hefur skapast á milli hrútsins Ástaraldins og 11 ára stelpu á sveitabæ í Flóahreppi en þau fara á hverjum degi saman út að hlaupa. Eftir hlaupið kembir stelpan hrútnum og dekrar við hann enda er hann gæfur með eindæmum. Lífið 11. desember 2023 20:30
Hestur losnaði í íslenskri flugvél og kom öllu í uppnám Flugvél Air Atlanta Icelandic þurfti að snúa við í loftinu þegar að hestur, sem verið var að flytja í lest vélarinnar losnaði og olli vandræðum. Innlent 15. nóvember 2023 23:29