Innlent

Með 800 grömm af kókaíni innan­klæða

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn kom með fluti til landsins um miðjan janúarmánuð síðastliðinn.
Maðurinn kom með fluti til landsins um miðjan janúarmánuð síðastliðinn. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sextán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega átta hundruð grömm af kókaíni með flugi til landsins í janúar síðastliðinn.

Maðurinn var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að flutningi á efnunum, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Maðurinn kom með flugi til landsins 15. janúar síðastliðinn og var með efnin falin innanklæða. Ekki var tekið fram í ákæru um hvaðan hann var að koma, en styrkleiki efnanna var 77 til 78 prósent.

Maðurinn játaði brot sitt án undandráttar, en í dómi segir að af rannsóknargögnum verði ekki séð að hann hafi verið eigandi efnanna eða skipuleggjandi innflutningsins. Hann hafi þó samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu og ljóst að aðkoma hans hafi verið ómissandi liður í því ferli að koma efnunum í dreifingu hér á landi.

Dómari í máli taldi hæfilega refsingu vera sextán mánaða fangelsi, en til frádráttar kæmi gæsluvarðhald sem hann hafði sætt frá komunni til landsins.

Manninum var jafnframt gert að greiða 1,6 milljónir króna í sakarkostnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×