Tíska og hönnun

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stjörnurnar skinu skært á Met Gala í New York borg í kvöld á fyrsta mánudegi maí mánaðar, þar á meðal var stórstjarnan Laufey.
Stjörnurnar skinu skært á Met Gala í New York borg í kvöld á fyrsta mánudegi maí mánaðar, þar á meðal var stórstjarnan Laufey. SAMSETT

Fyrsti mánudagur maí mánaðar er runninn upp en hann reynist tískuunnendum mikið tilhlökkunarefni. Ástæðan er sú að tískuviðburður ársins, Met Gala, fer fram í kvöld á Metropolitan safninu í New York borg. Stærstu stjörnur heimsins koma saman í glæsilegum klæðnaði hátískuhönnuða þar sem menning, tíska og upplifun rennur saman í eitt. 

Viðburðurinn virkar sem svo að stærstu tískuhönnuðir heimsins bjóða stjörnunum að klæðast flíkum eftir sig og á ári hverju er gefið út ákveðið þema. 

Í kjölfar viðburðarins opnar sýning á Metropolitan safninu sem einkennist af þemanu. Í ár mætti þýða þemað sem endurvakningu á sofandi fegurð, þar sem titillinn er „Sleeping Beauties: Reawakening Fashion“. Klæðnaðarkóðinn (e. dress code) er svo „The Garden of Time“ sem byggður er á smásögu eftir J.G. Ballard. Sækja því margir hönnuðir innblástur í blóm fyrir klæðnað kvöldsins. 

Hver og einn túlkar þemað á eigin hátt en hér fyrir neðan má sjá þær stjörnur sem skína hvað skærast í kvöld: 

DROTTNINGIN Jennifer Lopez er mættust í trufluðum kjól frá einum heitasta hönnuði samtímans Schiaparelli. J Lo er svokallaður co-chair viðburðarins og situr í stjórn 2024. Þvílík bomba. Vá. Jamie McCarthy/Getty Images
Laufey er stórglæsilegur fulltrúi okkar Íslendinga á flottasta tískuviðburði í heimi. Kevin Mazur/MG24/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Bohem bombur! Sienna Miller, Chemena Kamali, Greta Gerwig, Emma Mackey og Zoe Saldana allar klæddar í hönnun Chemena fyrir tískuhúsið Chloe. Bæði hip og kúl. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Súperstjarnan Zendaya hefur sjaldan skinið jafn skært og er sannkölluð it girl heimsins um þessar mundir. Hún er STÓRGLÆSILEG í þessum tryllta kjól frá Maison Margiela hátískuhúsinu. Hún situr sömuleiðis í stjórn Met Gala í ár. Jamie McCarthy/Getty Images
Jennifer Lopez og Zendaya á mánudagskvöldi, þannig er það! Kevin Mazur/MG24/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Tónlistarmaðurinn Bad Bunny klæðist jakkafötum og hatti í stíln frá Maison Margiela. Öll smáatriði til fyrirmyndar. John Shearer/WireImage
Glee stjarnan Lea Michele í ótrúlega ferskum tón af bláum með fallega óléttubumbu.Mike Coppola/MG24/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Maleah Joi Moon í rómantískum blómakjól. Jamie McCarthy/Getty Images
Stjarna stjarnanna Kim Kardashian mætir oftast með þeim síðustu á Met Gala. Hún rokkar sérsaumaðan silfurkjól frá John Galliano í kvöld.Dia Dipasupil/Getty Images
Rapparinn Lil Nas er mættur og veldur aldrei vonbrigðum á Met Gala enda einn best klæddi maður veraldar að mati einhverra.John Shearer/WireImage
Körfuboltakappinn Ben Simmons rokkar Tom Browne með klukkutösku. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Tískumóðirin Anna Wintour ritstjóri Vogue spilar veigamikið hlutverk í Met Gala á ári hverju. Hún klæðist Loewe í hönnun Jonathan Anderson. Kevin Mazur/MG24/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Ofurparið Leonardo Del Vecchio Ray ban erfingi og leikkonan Jessica Serfaty Michel. Eitt orð: Groovy. Mike Coppola/MG24/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Leikhúsframleiðandinn Jordan Roth skildi verkefnið. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Rísandi stjarnan og söngkonan Tyla á sínu fyrsta Met Gala í kvöld stórglæsileg í kjól frá Balmain sem virðist gera verður úr sandi og með stundaglasið á kantinum. Beint af ströndinni en Tyla er hvað þekktust fyrir lag sitt Water. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Fjölmiðlakonan og listagyðjan Amy Fine Collins í sérhönnuði dressi eftir tískuhúsið Alice + Olivia. Jamie McCarthy/Getty Images
Cole Escola með slörið og blómin. John Shearer/WireImage
J. Harrison Ghee sker sig svo sannarlega úr á dreglinum. Jamie McCarthy/Getty Images
Sabrina Harrison reynir að snúa klukkunni og endurvekja tímann íklædd gylltu! Kevin Mazur/MG24/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Listamaðurinn og TikTok stjarnan Wisdom Kaye glæsilegur í rósarauðu en þó nokkrir klæðast rauðu í kvöld þrátt fyrir að margir séu ekki mikið í litagleðinni. Jamie McCarthy/Getty Images
Ofurfyrirsætan Gigi Hadid er sumarleg í síðkjól frá Thom Browne. Það tók ekki nema 13.500 klukkutíma að hanna kjólinn. Jamie McCarthy/Getty Images
Lena Waithe þvílíkur töffari og hinsegin fyrirmynd í leðri frá toppi til táar. Dia Dipasupil/Getty Images
Fyrirsætan og hlaðvarpsstýran Emily Ratajkowski fer alltaf eigin leiðir í fatavali. Hún skín í gegnsæjum silfurkjól að sjálfsögðu með blómamynstri.Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Jessica Biel er bleik blómabomba! Jamie McCarthy/Getty Images
Dove Cameron og Damiano David stórglæsileg á heldur betur einstöku deitkvöldi. John Shearer/WireImage
Leikkonan Demi Moore og hátískuhönnuðurinn Harris Reed sem er listrænn stjórnandi Nina Ricci komu, sáu og sigruðu. Dia Dipasupil/Getty Images
Leikkonan og tónlistarkonan Cynthia Erivo í blóma gala pilsadragt! Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue

Tengdar fréttir

Verða sængur og koddar viðriðin næsta Met Gala?

Fyrsta mánudag maí mánaðar koma stjörnurnar árlega saman í glæsilegum klæðnaði í tilefni af viðburðinum Met Gala, sem er gjarnan talinn stærsti tískuviðburður ársins.

Kisur, brúðar­kjólar og glimmeraðir þvengir á Met Gala

Stórstjörnur heimsins sameinuðust á listasafninu The Met í gærkvöldi, fyrsta mánudag maí mánaðar, í tilefni af Met Gala. Er um að ræða árlegan góðgerðarviðburð sem hefur fyrir löngu skráð sig í sögubækurnar sem einn stærsti og glæsilegasti tískuviðburður ársins.

Svipta hulunni af þema Met Gala

Óhætt er að segja að hinn árlegi Met Gala viðburður sé einn stærsti tískuviðburður ársins. Á hverju ári er valið sérstakt þema fyrir viðburðinn sem skærustu stjörnur heims klæða sig eftir. Það hafa því eflaust margir beðið spenntir eftir því að fá að vita hvaða þema verður fyrir valinu fyrir þennan stórviðburð á næsta ári.

Kim sögð hafa eyðilagt kjól Marilyn Monroe

Kim Kardashian er sögð hafa eyðilagt 60 ára gamlan kjól Marilyn Monroe sem hún fékk lánaðan fyrir Met Galað í maí síðastliðnum. Stærsta einkasafn heims af munum Marilyn Monroe benti á að demantar hafi dottið af kjólnum eftir að Kim fékk kjólinn lánaðan.

Kim skein skærast í kjól frá Marilyn Monroe

Tískuviðburður ársins, Met Gala, fór fram með pomp og prakti í gærkvöldi á Metropolitan safninu í New York. Þar mætast listir, menning og tíska á óaðfinnanlegan hátt og stórstjörnur heimsins ganga rauða dregilinn í einhverjum dýrustu flíkum heims. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×