Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Atli Ísleifsson skrifar 26. apríl 2024 07:14 Hiti yfir daginn verður frá einu stigi norðaustanlands, að þrettán stigum á Suðurlandi. Vísir/Arnar Gera má ráð fyrir tilbreytingarlitlu veðri næstu daga þar sem áttin verður norðlæg og fremur kalt á Norður- og Austurlandi í þungbúnu veðri. Sunnan heiða verður bjartara um að litast og yfir daginn mun sólin ylja þannig að hitinn verði viðunandi.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að í dag hljóði spáin upp á norðlæga átt, þrír til tíu metrar á sekúndu, og léttskýjuðu veðri nokkuð víða. Á Norður- og Austurlandi verður skýjað og þokuloft á köflum. „Hiti yfir daginn frá 1 stigi norðaustanlands, að 13 stigum á Suðurlandi. Bætir heldur í vind í kvöld og nótt, norðan 5-13 á morgun og dálítil snjókoma eða slydda norðaustan- og austanlands, en bjartviðri á suðvestanverðu landinu. Hiti breytist lítið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Dálítil snjókoma eða slydda norðaustan- og austanlands, en bjartviðri á suðvestanverðu landinu. Hiti 0 til 10 stig yfir daginn, mildast á Suðurlandi. Á sunnudag: Austan 5-10, en 10-15 með suðausturströndinni. Bjart að mestu vestanlands. Skýjað austantil á landinu og dálítil væta á köflum. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á mánudag og þriðjudag: Norðaustan og norðan 3-10. Skýjað og þurrt að kalla norðanlands, en yfirleitt þurrt og bjart sunnantil. Hiti 2 til 10 stig að deginum, svalast norðaustanlands. Á miðvikudag og fimmtudag: Suðvestlæg átt. Skýjað og úrkomulítið á vestanverðu landinu, en bjartviðri austantil. Hiti víða 5 til 10 stig.
Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Víðast bjart en dálitlar skúrir sunnanlands Þurrt suðvestantil og hiti á landinu að tólf stigum Vaxandi suðaustanátt og bætir í rigningu Léttskýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun Líkur á stöku skúrum eða slydduéljum fram eftir degi Skúrir og slydduél í suðlægum áttum Svölu og óstöðugu skúralofti beint til landsins Búast má við slyddu Rigning með köflum víðast hvar Víðast dálitlar skúrir en bjartara norðanlands Bjartviðri á verkalýðsdaginn Að mestu léttskýjað sunnan- og vestantil Norðlægari vindur í dag en um helgina Hvassast sunnantil og hlýjast vestantil Lægð nálgast landið úr austri Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Sól og allt að þrettán gráður í borginni Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum Hægur vindur og sólríkt veður Hiti að þrettán stigum Siggi stormur lofar hlýju og sólríku sumri Gul viðvörun á Norðurlandi eystra Víða blautt í dag og varað við asahláku Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Enn verður kalt í dag Hlýnar um helgina Fer að snjóa sunnan- og vestantil Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Sjá meira