Fréttir af flugi
1 2 3 4 5 6 … 139 ›
Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. Erlent 17.5.2024 11:03
Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum var fagnað með borðaklippingu, bæði við brottför frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær og einnig við komuna til Pittsburgh í gærkvöldi. Félagið hefur aldrei áður flogið til Pittsburgh en borgin er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og sá tólfti í Bandaríkjunum. Viðskipti 17.5.2024 06:01
Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Kanadíska flugfélagið WestJet fór í dag í sínar fyrstu ferðir milli Calgary í Albertafylki og Keflavíkurflugvallar. Fyrsta fluginu var sérstaklega fagnað í morgun þar sem forstjóri Isavia og framkvæmdastjóri frá WestJet klipptu á borða áður en flogið var frá Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 16.5.2024 15:52
Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Forstjóri Play vill árétta að flugfélagið sé ekki á förum frá Íslandi. Kjarnastarfsemin sé hér á landi og verði það áfram. Í tengslum við stækkunarfasa félagsins séu hins vegar uppi hugmyndir um að tvær til þrjár flugvélar verði staðsettar í öðru landi. Viðskipti innlent 16.5.2024 13:34
Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Vegagerðin hefur hafnað öllum tilboðum sem þeim bárust þeim í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði í vetur. Opnað var fyrir tilboð þann 30. apríl, en þrjú tilboð bárust sem öll voru töluvert yfir kostnaðaráætlun. Til stendur að bjóða tilboðsaðilum til samningaviðræðna, en núgildandi samningur rennur út 30. ágúst 2024. Innlent 16.5.2024 10:46
Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Forstjóri Play hefur velt upp möguleikanum á því að koma á fót heimavelli annars staðar en á Íslandi, til dæmis á Spáni. Þannig væri hægt að fljúga frá Spáni til Íslands með spænska áhöfn. Viðskipti innlent 15.5.2024 18:00
Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Sænska flugvélafyrirtækið Heart Aerospace tilkynnti í dag að það hefði ákveðið að flytja hluta af þróunarstarfi vegna þrjátíu sæta tvinn-rafmagnsflugvélar frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Jafnframt hefur félagið hætt við verksmiðjubyggingu í Halmstad en í staðinn ákveðið að reisa rannsóknar- og þróunarmiðstöð í Los Angeles í Kaliforníu. Erlent 15.5.2024 17:44
Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Hæstiréttur hefur viðurkennt að starfsmaður átti að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar. Innlent 15.5.2024 15:17
Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Flugvél Icelandair sem lögð var af stað til Glasgow í Skotlandi þurfti að snúa við skömmu eftir brottför. Vélin tók á loft rétt fyrir hálf ellefu í morgun en upp úr ellefu barst boðun um vélarvanda og óskað var eftir því að vélinni yrði snúið við. Innlent 15.5.2024 12:25
Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur rofið ákvæði í risasátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og gæti því átt yfir höfði sér refsimál. Viðskipti erlent 14.5.2024 23:36
Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. Erlent 14.5.2024 22:22
Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm 6. maí síðastliðinn var flugáhöfnum hollenska flugfélagins KLM heimilt að klæðast strigaskóm í stað hæla- og fínum leðurskóm við störf sín í háloftunum. Félagið segir breytinguna stuðla að vellíðan og afköstum starfsmanna í takt við tímann. Tíska og hönnun 14.5.2024 14:22
„Hvar er Gordon Gekko?“ er spurt í hagstæðu verðmati fyrir Icelandair Spákaupmenn virðast hafa yfirgefið Icelandair. Gengi flugfélagsins hefur helmingast á nokkrum mánuðum, óháð undirliggjandi verðmætum, segir í hlutabréfagreiningu en Icelandair er þar verðmetið langt yfir markaðsvirði. Íslenskur hlutabréfamarkaður er óskilvirkur um þessar mundir sem endurspeglist best með fasteignafélögin þar sem markaðsverð er langt undir varlega metnu bókfærðu virði. Fjárfestar virðast verðleggja þau „norður og niður“ rétt eins og Icelandair. Innherji 14.5.2024 14:09
Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Ellefu slösuðust, þar af fjórir alvarlega, þegar Boeing 737-300 flugvél hrapaði við flugtak á Blaise Diagne flugvellinum í Dakar í Senegal. Öll starfsemi á flugvellinum hefur verið stöðvuð vegna slyssins. Erlent 9.5.2024 11:56
Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Ljósmyndasafn Reykjavíkur minntist þess í dag að eitthundrað ár verða liðin í sumar frá því flugvélar flugu í fyrsta sinn yfir hafið til Íslands. Þessa dagana standa alþjóðasamtök flugfélaga fyrir ráðstefnu í Reykjavík um hvernig bæta megi þjónustu á flugvöllum á heimsvísu. Innlent 7.5.2024 22:34
Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Samningar voru undirritaðir milli SA fyrir hönd ISAVIA ohf. og samninganefnda starfsmanna Sameykis og FFR rétt í þessu og verkföllum sem boðuð höfðu verið á Keflavíkurflugvelli aflýst. Innlent 7.5.2024 22:00
Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Flugfélagið Play flutti rúmlega 122 þúsund farþega í apríl 2024, sem er 19 prósent meira en í apríl á síðasta ári. Sætanýtingin í apríl 2024 var 85,1 prósent, sem er aukning frá apríl í fyrra þegar sætanýting var 80,8 prósent. Viðskipti innlent 7.5.2024 11:18
Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Heildarfjöldi farþega Icelandair var 307 þúsund í apríl, fjórum prósentum fleiri en í apríl 2023. Það sem af er ári hefur félagið flutt meira en eina milljón farþega. Viðskipti innlent 6.5.2024 17:36
Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið og bandarísku flugvélaleiguna ALC af milljarðakröfum Isavia. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði komist að annarri niðurstöðu og taldi að dómari við Héraðsdóm Reykjaness hefði komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni. Viðskipti innlent 6.5.2024 16:36
Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Íslensku flugfélögin tvö, Icelandair og Play, mun bjóða farþegum sem ferðast frá Íslandi að flýta eða seinka flugferðum sínum á föstudag, en áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast þann dag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Innlent 6.5.2024 15:50
Frestun verkfalla kemur til greina Formaður Sameykis segir koma til greina að fresta verkfallsaðgerðum á Keflavíkurflugvelli. Hann fer bjartsýnn til fundar hjá ríkissáttasemjara og telur að mögulega verði hægt að ljúka samningum áður en aðgerðirnar skella á. Innlent 5.5.2024 11:12
Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Ríkissáttasemjari hefur boðað stéttarfélög starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtök atvinnulífsins á fund í Karphúsinu á hádegi. Að óbreyttu hefjast aðgerðir á flugvellinum að síðdegis á fimmtudag. Innlent 5.5.2024 09:59
Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Stjórnendum Boeing 747 þotu íslenska flugfélagsins Air Atlanta varð á í messunni þegar taka átti á loft frá flugvellinum í Ríad í Sádi-Arabíu á dögunum. Nauðhemla þurfti þegar í ljós kom að röng beygja hafði verið tekin inn á akstursbraut í stað flugbrautar í aðdraganda flugtaks. Flugvélin staðnæmdist um þrjátíu metrum frá enda akstursbrautarinnar. Erlent 4.5.2024 08:41
Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Nýtt flugfraktfélag, Odin Cargo, hefur gengið frá langtímasamningum við birgja og hyggst bjóða uppá sömu flugáætlun og Bláfugl, sem nýverið skilaði inn flugrekstrarleyfi sínu. Odin Cargo mun bjóða upp á fraktflug alla virka daga milli Keflavíkur, Billund og Kölnar. Viðskipti innlent 3.5.2024 10:54
Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Arnar Már Magnússon hefur verið gerður að aðstoðarforstjóra flugfélagsins Play. Arnar Már hefur verið framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play og mun áfram sinna þeirri stöðu meðfram nýju hlutverki. Viðskipti innlent 2.5.2024 16:50
Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu, hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli. Um 80% félagsmanna FFR greiddu atkvæði með aðgerðunum. Innlent 2.5.2024 14:29
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1.5.2024 23:00
Vanefndir Flugakademíu Íslands Á dögunum lýsti Flugakademía Íslands, einn af skólum Keilis, yfir gjaldþroti sem nam um hálfum miljarði króna. Margir fyrrum nemendur og kennarar segja farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti sín við Flugakademíuna og hefur þetta fengið nokkra fjölmiðlaumjöllun á undanförnum vikum og mánuðum. Skoðun 1.5.2024 06:01
Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Flugvöllurinn í Vogum í Færeyjum, eini flugvöllur eyjanna, verður færður upp um einn öryggisflokk. Það þýðir að Boeing 757-fraktþota FarCargo, dótturfélags Bakkafrosts, fær loksins varanlegt leyfi til að lenda í sinni eigin heimahöfn. Erlent 29.4.2024 23:37
Fjármálastjóri Play segir upp Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, lætur af störfum að eigin ósk. Ólafur mun áfram sinna stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs þar til eftirmaður hans tekur við. Viðskipti innlent 26.4.2024 16:14