„Hvar er Gordon Gekko?“ er spurt í hagstæðu verðmati fyrir Icelandair Spákaupmenn virðast hafa yfirgefið Icelandair. Gengi flugfélagsins hefur helmingast á nokkrum mánuðum, óháð undirliggjandi verðmætum, segir í hlutabréfagreiningu en Icelandair er þar verðmetið langt yfir markaðsvirði. Íslenskur hlutabréfamarkaður er óskilvirkur um þessar mundir sem endurspeglist best með fasteignafélögin þar sem markaðsverð er langt undir varlega metnu bókfærðu virði. Fjárfestar virðast verðleggja þau „norður og niður“ rétt eins og Icelandair. 14.5.2024 14:09
Alfa Framtak bætir við hótelsamstæðuna og kaupir Magma Framtakssjóður Alfa Framtak hefur gengið frá kaupum á Magma hóteli sem er þrjá kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. „Við höfum trú á íslenskri ferðaþjónustu,“ segir fjárfestingarstjóri sjóðastýringarinnar. 13.5.2024 19:23
Verðmetur Síldarvinnsluna yfir markaðsvirði í fyrsta skipti í 30 mánuði Í fyrsta skipti í þrjátíu mánuði er verðmatsgengi hlutabréfagreinanda fyrir ofan markaðsgengi Síldarvinnslunnar. „Hvort það endurspegli stöðuna á markaðnum eða hvort Jakobsson Capital sé mun bjartsýnna á slorið en markaðurinn er erfitt að segja. Óvissan er mikil en sveiflur markaðarins eru oft eins og sveiflur í loðnugöngum,“ segir í nýju verðmati en gert ráð fyrir því að rekstrarhagnaður útgerðarinnar verði orðinn hærri 2026 en hann var „metárið 2023.“ 13.5.2024 12:43
Telja að „bestu dagar Airbnb séu framundan“ Sjóðstjórar Paragon Fund telja að bestu dagar Airbnb séu framundan og að félagið muni auka enn frekar við markaðshlutdeild sína á næstu árum. Paragon Fund uppskar 130 prósenta ávöxtun á hálfu ári við kaup á hollensku fjártækni fyrirtæki sem lækkaði verulega eftir lélegt uppgjör. Sjóðstjórunum þótti viðbrögð við uppgjörinu ýkt og hófu að fjárfesta í bréfum Adyen. Þeir telja að undirliggjandi rekstrarframlegð Amazon samstæðunnar eigi mikið inni. 12.5.2024 09:00
„Leiðréttingar eru hluti af markaðnum og þær skal ekki óttast“ Það kæmi sjóðstjórum Paragon Fund ekki á óvart ef bandaríski hlutabréfamarkaðurinn myndi taka „smávægilega leiðréttingu á næstunni“ eftir talsvert miklar hækkanir undanfarna mánuði. Þær voru að hluta byggðar á væntingum um lækkun stýrivaxta. „Leiðréttingar eru hluti af markaðnum og þær skal ekki óttast,“ segir í bréfi til fjárfesta sjóðsins en þar er bent á að jafnaði lækki S&P 500 vísitalan um 14 prósent frá hæsta punkti til þess lægsta innan hvers árs. 10.5.2024 15:58
Afkoma Marels undir væntingum en jákvæðari tónn meðal viðskiptavina Afkoma Marels var undir væntingum greinenda á fyrsta ársfjórðungi. Forstjóri Marels sagði á afkomufundi að merkja megi jákvæðari tón á meðal viðskiptavina og að pantanir muni aukast á seinni hluta ársins samhliða bættum markaðsaðstæðum. Marel lækkaði um fjögur prósent í dag. 8.5.2024 17:45
Aðgerðir til að liðka fyrir kjarasamningum hafa takmörkuð áhrif á verðbólgu Áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir kjarasamningum fyrir stóran hluta vinnumarkaðarins eru takmörkuð á hagvöxt og verðbólgu, sagði aðalhagfræðingur Seðlabankans á fundi peningastefnunefndar í morgun. Seðlabankastjóri nefndi að hætta væri á að verðbólga verði treg til að fara niður í fjögur til fimm prósent. 8.5.2024 14:23
Akta: Frumvarp ráðherra samkeppnishamlandi fyrir minni sjóðastýringar Framkvæmdastjóri Akta segir mikilvægt að jafnræðis sé gætt á meðal rekstrarfélaga verðbréfasjóða þegar kemur að nýjum lögum um aukið frelsi varðandi viðbótarlífeyrissparnað. Atriði í frumvarpinu séu samkeppnishamlandi fyrir minni fyrirtæki á markaðnum og gangi gegn hagsmunum þeirra sem eigi viðbótarlífeyrissparnað. 7.5.2024 12:34
Kostnaður vegna endurskipulagningar hjá Arctic Adventures litar afkomuna Talsvert var um einskiptiskostnað hjá Arctic Adventures vegna starfsmannabreytinga og endurskipulagningar á innra starfi félagsins á árinu 2023. Þótt tekjur hafi aukist um 37 prósent dróst hagnaður nokkuð saman af þeim völdum. Fyrirtækið keypti Kerið í Grímsnesi í fyrra en samkvæmt fjárhagsupplýsingum frá Arctic Adventures námu fjárfestingar í fasteignum og landi tæplega tveimur milljörðum. 6.5.2024 16:48
Of ströng beiting samkeppnislaga hindrun við uppbyggingu fjarskiptainnviða Æskilegt er að fjarskiptafyrirtæki geti í meira mæli haft samstarf um uppbyggingu á 5G neti og öðrum fjarskiptainnviðum. Það hefur enda sýnt sig að skynsamleg samnýting innviða lækkar verð til endanotenda og þannig er hægt að koma nýjustu tækni fyrr til notenda. Samkeppnislög hvað þetta varðar eru ekki endilega vandamál hérlendis heldur fremur beiting þeirra, segir forstjóri Mílu. 6.5.2024 13:05