Hamar í forystu gegn Val Kvennalið Hamars úr Hveragerði vann Val í kvöld 72-63 en þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni Íslandsmóts kvenna í körfubolta. Liðið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í undanúrslit. Körfubolti 2. mars 2009 21:03
Melissa Mitidiero byrjar vel með Val Bandaríski bakvörðurinn Melissa Mitidiero hefur byrjað vel með Val í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 27. febrúar 2009 14:01
Signý varði aftur yfir hundrað skot Valskonan Signý Hermannsdóttir náði því að verja yfir 100 skot annað árið í röð þegar hún varð sex skot frá Grindvíkingum í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna í gær. Körfubolti 26. febrúar 2009 16:30
Sigrún er tólf tommu ryðfrír nagli KR-konan Sigrún Ámundadóttir kom miklu meira við sögu í sigri KR á Hamar í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld en búist var við því hún átti ekki að geta spilað leikinn vegna meiðsla. Körfubolti 25. febrúar 2009 22:30
KR tryggði sér 3. sætið með frábærum seinni hálfleik KR-konur unnu fjórtán stiga sigur á Hamar, 62-48, í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í kvöld og tryggðu sér þar með þriðja sætið í deildinni. Sport 25. febrúar 2009 20:57
Keflavík fór létt með deildarmeistarana Keflavík vann í kvöld stórsigur á deildarmeisturum Hauka á heimavelli í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna. Körfubolti 25. febrúar 2009 20:43
Haukastúlkur tóku við bikarnum (myndir) Haukastúlkur töpuðu í kvöld 61-54 fyrir Hamri í A-riðli Iceland Express deildarinnar á Ásvöllum. Þær voru hinsvegar fljótar að gleyma tapinu því eftir leikinn fengu þær afhentan bikarinn fyrir að vinna deildameistaratitlinnn sem þær tryggðu sér á dögunum. Körfubolti 22. febrúar 2009 21:36
Keflavík kom fram hefndum Keflavík lagði KR 79-70 í A-riðli Iceland Express deildar kvenna í körfubolta og hefndi þar með fyrir tapið í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. Körfubolti 21. febrúar 2009 17:34
Keflavík öruggt með 2. sætið Keflavík tryggði sér í kvöld 2. sæti A-riðils í Iceland Express deild kvenna með sigri á Hamar í Hveragerði, 81-76. Körfubolti 18. febrúar 2009 20:56
Haukar lögðu bikarmeistarana Haukar unnu í kvöld öruggan ellefu stiga sigur á nýkrýndum bikarmeisturum KR, 83-72. Þar með er ljóst að KR á engan möguleika að ná sér í annað sæti deildarinnar. Körfubolti 18. febrúar 2009 19:56
KR á 110 ára afmæli í dag Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, var stofnað á þessum degi árið 1899 og er því 110 ára í dag. Það var því tvöföld ástæða fyrir kvennalið KR í körfunni að fagna glæstum sigri sínum í bikarkeppninni í gær. Körfubolti 16. febrúar 2009 11:52
Grindavík lagði Val Grindavíkurstúlkur náðu að halda spennu í toppbaráttu B-riðilsins í Iceland Express deild kvenna í kvöld þegar þær gerðu góða ferð í bæinn og lögðu Val 61-58. Körfubolti 11. febrúar 2009 21:54
Haukastúlkur deildarmeistarar Kvennalið Hauka tryggði sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deildinni með öruggum sigri á Keflavík á Ásvöllum 82-67 og um leið heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina. Körfubolti 8. febrúar 2009 20:42
Toppslagur á Ásvöllum í kvöld Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitil kvenna í körfubolta takist liðinu að vinna Keflavík en liðin mætast að Ásvöllum klukkan 19:15 í kvöld. Körfubolti 8. febrúar 2009 13:09
KR í þriðja sætið KR-stúlkur unnu í dag góðan sigur á Hamri í Hveragerði 79-76 í A-riðli Iceland Express deildar kvenna og fyrir vikið er KR komið í þriðja sætið með 20 stig en Hamar hefur 18 stig. Körfubolti 7. febrúar 2009 19:50
Hildur tryggði KR sigur á Keflavík Haukar unnu í kvöld sigur á Hamar í Hveragerði, 72-63, en á sama tíma vann KR góðan sigur á Keflavík í æsispennandi leik, 78-74. Körfubolti 4. febrúar 2009 21:06
Stórsigur Grindavíkur Grindavík vann í dag stórsigur á Fjölni í B-riðli Iceland Express deild kvenna í Grafarvoginum, 72-42. Körfubolti 1. febrúar 2009 18:45
Birna skoraði 31 stig í sigri Keflavíkur Þrír leikir voru á dagskrá í Iceland Express deild kvenna í kvöld, einn í A-riðli og tveir í B-riðli. Körfubolti 28. janúar 2009 21:05
Keflavík og KR leika til úrslita Það verða Keflavík og KR sem leika til úrslita í Subway bikar kvenna í körfubolta. Liðin tryggðu sér sæti í úrslitum í dag með stórsigrum í undanúrslitaviðureignunum. Körfubolti 25. janúar 2009 17:33
Deildinni skipt í tvo riðla Nú hefur Iceland Express deild kvenna verið skipt í tvo riðla og er búið að raða niður leikjunum í fyrstu umferðinni í báðum riðlum. Körfubolti 23. janúar 2009 18:05
Haukar styrktu stöðu sína á toppnum Haukar unnu í kvöld sigur á Hamar í Iceland Express deild kvenna, 81-72, og styrktu þar meðs töðu sína á toppi deildarinnar. Körfubolti 21. janúar 2009 20:54
KR vann botnliðið KR vann í dag fremur auðveldan sigur á Fjölni, 90-57, eftir að hafa lent undir að loknum fyrsta leikhluta, 23-19. Körfubolti 17. janúar 2009 17:52
KR upp fyrir Val Þrettánda umferðinn í Iceland Express deild kvenna í körfubolta fór fram í kvöld. KR vann öruggan 77-53 sigur á Val og hirti þar með fjórða sætið af Valsliðinu. Körfubolti 14. janúar 2009 20:54
Grindavík vann ÍR Grindvíkingar eru komnir í undanúrslit Subway-bikars karla eftir sigur á ÍR-ingum á heimavelli í kvöld 105-78. Átta liða úrslitum keppninnar lýkur annað kvöld með viðureign Njarðvíkur og Hauka. Körfubolti 12. janúar 2009 20:49
KR-stúlkur burstuðu Hauka KR-stúlkur gerðu sér lítið fyrir og burstuðu Hauka 93-65 á Ásvöllum í 8-liða úrslitum Subway bikarsins í körfubolta í kvöld. Körfubolti 11. janúar 2009 18:42
Margrét Kara sýndi fjölhæfni sína í fyrsta leik Margrét Kara Sturludóttir sýndi fjölhæfni sína í fyrsta leik sínum í KR-búningnum í Iceland Express deild kvenna í gær. Körfubolti 8. janúar 2009 15:15
Valur lagði Hamar Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í kvöld þar sem Valur vann meðal annars eins stigs sigur á Hamar á heimavelli, 61-60. Körfubolti 7. janúar 2009 21:07
Karfan af stað á ný í kvöld Iceland Express deild kvenna hefst á ný í kvöld eftir jólafrí og þar er strax á dagskrá stórleikur í Grindavík. Þar taka heimastúlkur á móti grönnum sínum í Keflavík. KR tekur á móti Snæfelli og Valur á móti Hamri. Allir leikirnir hefjast 19:15 venju samkvæmt. Körfubolti 7. janúar 2009 11:25
Lífið heldur áfram án Helenu "Þetta er að sjálfssögðu bara liðinu að þakka. Við erum með frábært lið og það hjálpar mér að spila vel," sagði Kristrún Sigurjónsdóttir, besti leikmaður fyrstu 11 umferða Iceland Express deildar kvenna í körfubolta. Körfubolti 6. janúar 2009 13:48
Margrét Kara til liðs við KR Margrét Kara Sturludóttir, landsliðskona í körfuknattleik, hefur ákveðið að ganga til liðs við KR. Hún hefur dvalið vestur í Bandaríkjunum við nám en snéri heim á dögunum. Körfubolti 22. desember 2008 21:36