Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur
Innviðaráðherra hefur ákveðið að stofna framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggðina og samfélag. Þetta var kynnt á blaðamannafundi í Safnahúsinu í morgun en þrír munu eiga sæti í nefndinni.