Sport

Daníel stór­bætti þrjá­tíu ára Ís­lands­met Jóns Arnars

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Daníel Ingi Egilsson hefur verið í mikilli sókn að undanförnu.
Daníel Ingi Egilsson hefur verið í mikilli sókn að undanförnu. INSTAGRAM/@ICELANDATHLETICS

Daníel Ingi Egilsson varð í dag Norðurlandameistari í langstökki á nýju Íslandsmeti. Hann stórbætti þrjátíu ára gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar í greininni.

Íslendingar hafa átt afar góðu gengi að fagna á Norðurlandamótinu í Malmö. Í gær hrósaði Aníta Hinriksdóttir sigri í 1500 metra hlaupi og fyrr í dag varð Guðni Valur Guðnason hlutskarpastur í kringlukasti.

Þriðja gullið kom svo í hús þegar Daníel varð Norðurlandameistari í langstökki í dag.

Hann stökk 8,21 metra og bætti þar með þrjátíu ára gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar. Met hans var 8,00 en Daníel sló það í þriðju tilraun með stökki upp á 8,01 metra og í því fjórða bætti hann um betur og stökk 8,21 metra.

Hér fyrir neðan má sjá Daníel slá Íslandsmet Jóns Arnars í Malmö í dag en við þökkum Hermanni Þór og FRÍ kærlega fyrir upptökuna.

Stökk Daníels var það tólfta lengsta í heiminum á árinu og með því tryggði hann sér sæti á EM í Róm í júlí.

Þess má geta að lágmarkið fyrir Ólympíuleikana er 8,27 metrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×