Enski boltinn

Segir að Casemiro hafi verið að­hláturs­efni gegn Palace

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Casemiro vill eflaust gleyma frammistöðu sinni gegn Crystal Palace sem fyrst.
Casemiro vill eflaust gleyma frammistöðu sinni gegn Crystal Palace sem fyrst. getty/Zac Goodwin

Jamie Carragher fór ekki fögrum orðum um frammistöðu Casemiros í 4-0 tapi Manchester United fyrir Crystal Palace í gær og sagði að Brassinn gæti ekki lengur spilað á hæsta getustigi.

Vegna mikilla meiðsla var Casemiro notaður í vörn United í leiknum á Selhurst Park í gær. Hann átti mjög erfitt uppdráttar og sóknarmenn Palace fóru oft illa með hann.

Carragher segir sorglegt að sjá hvernig komið er fyrir Casemiro sem hefur átt afar farsælan feril. Hann vann meðal annars Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum með Real Madrid.

„Ég held að Casemiro ætti núna að vita að hann ætti bara að eiga þrjá leiki eftir á hæsta getustigi. Næstu tvo deildarleiki og svo bikarúrslitaleikinn. Síðan ætti hann að hugsa: Ég þarf að komast í MLS eða til Sádi-Arabíu,“ sagði Carragher eftir leikinn í gær.

„Þetta verður að enda því við erum að horfa á frábæran leikmann. Ég man alltaf eftir að hafa sagt: Yfirgefðu fótboltann áður en hann yfirgefur þig. Og fótboltinn hefur yfirgefið hann. Hann verður að segja þetta gott á þessu stigi og færa sig um set. Svona leikmaður ætti ekki þurfa þræla sér í gegnum þetta. Hann er of góður leikmaður til að eiga svona frammistöðu og vera aðhlátursefni gegn Palace.“

Casemiro kom til United frá Real Madrid fyrir síðasta tímabil. Hann lék vel í fyrra en hefur ekki átt góðu gengi að fagna í vetur, ekki frekar en aðrir leikmenn United sem er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.


Tengdar fréttir

„Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“

Erik ten Hag stýrir Manchester United í bikarúrslitaleik gegn Manchester City 25. maí en það gæti jafnframt orðið síðasti leikurinn hans sem stjóri United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×