Fótbolti

Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sara Björk í leik með Juventus.
Sara Björk í leik með Juventus. Giuseppe Maffia/Getty Images

Sara Björk Gunnarsdóttir hafði betur gegn Alexöndru Jóhannsdóttur þegar Juventus vann 2-0 útisigur á Fiorentina. í Serie A, efstu deild kvenna í knattspyrnu, á Ítalíu.

Sofia Cantore kom Juventus yfir á markamínútunni sjálfri, þeirri fertugustu og þriðju. Lisa Boattin með stoðsendinguna og staðan 0-1 í hálfleik.

Alexandra var tekin af velli á 77. mínútu og þremur mínútum síðar fékk Sara Björk gult spjald. Barbara Bonansea bætti svo öðru marki Juventus við undir lok leiks, lokatölur 0-2.

Juventus er sem fyrr í 2. sæti, nú með 53 stig, á meðan Fiorentina er í 3. sæti með 42 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×