Crys­tal Palace lék sér að Man United

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rauðu djöflarnir hvoru hvorki fugl né fiskur í kvöld.
Rauðu djöflarnir hvoru hvorki fugl né fiskur í kvöld. Chloe Knott/Getty Images

Ömurlegt tímabil Manchester United náði enn einum lágpunktinum í kvöld þegar liðið mátti þola 4-0 tap á útivelli gegn Crystal Palace. Palace hafði skorað 45 mörk í 35 leikjum fyrir leik kvöldsins eða tæplega 1,3 að meðaltali í leik.

Palace hefur verið á fínu skriði og meðal annars unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Þar á meðal var 1-0 útisigur á Liverpool, 2-0 sigur á Newcastle United og 5-2 sigur á West Ham United. Þeir toppuðu svo gott gengi sitt með því að slátra vængbrotnu liði Man United.

Man United er í miðvarðakrísu en Jonny Evans og Casemiro hófu leik í miðverði. Sá fyrrnefndi var að skríða saman eftir meiðsli og sá síðarnefndi er orðaður frá félaginu eftir hörmungar tímabil. Þá var enginn Bruno Fernandes í byrjunarliði gestanna en hann er meiddur í fyrsta sinn á ferlinum.

Michael Olise, sem hefur verið orðaður við Man United, skoraði fyrsta mark leiksins á 12. mínútu þegar hann þrumaði boltanum í netið frá vítateigslínunni. André Onana átti aldrei roð í marki gestanna.

Casemiro hélt hann hefði jafnað metin eftir rúmlega hálftíma en mark hans var dæmt af þar sem danski framherjinn Rasmus Höjlund braut á Dean Henderson, markverði Palace. Það var svo þegar fimm mínútur voru til loka fyrri hálfleik sem Jean-Philippe Mateta kom heimaliðinu 2-0 yfir með þrumuskoti eftir að fara illa með Evans í aðdragandanum. Þá má setja stórt spurningamerki við staðsetningu Onana í markinu.

Á 53. mínútu hélt Casemiro aftur að hann hefði skorað en hann var rangstæður áður en hann skallaði knöttinn í netið. Aðeins fjórum mínútum síðar gerðu heimamenn atlögu að marki Man United.

Onana varði í tvívang vel en heimamenn fengu í kjölfarið hornspyrnu. Hún var tekin stutt og endaði með því að boltinn barst til Tyrick Mitchell sem skoraði með föstu skoti. Staðan orðin 3-0 og sæti Erik Ten Hags orðið verulega heitt.

Það var svo á 66. mínútu sem Olise skoraði aftur með föstu skoti og staðan orðin 4-0 Palace í vil. Reyndust það lokatölur og 13. deildartap Man United á leiktíðinni staðreynd.

Man United er í 8. sæti að loknum 35 leikjum með 54 stig og markatöluna 52-55. Palace er í 14. sæti með 43 stig og markatöluna 49-57.


Tengdar fréttir

Mið­varða­mar­tröð Man United heldur á­fram

Harry Maguire, miðvörður Manchester United og enska landsliðsins í knattspyrnu, verður frá keppni næstu þrjár vikurnar. Hann missir því af síðustu deildarleikjum Man United og líklega úrslitaleik ensku bikarkeppninnar. Þá gæti landsliðssæti hans einnig verið í hættu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira