Skoðun

Manstu ekki eftir mér

Sævar Helgi Lárusson skrifar

Ég er á vestur leiðinni, á háheiðinni. Á hundrað og tíu, ég má ekki verða of seinn, orti skáldið hér forðum daga. Þórður heitir hann Árnason, Ragga Gísla samdi svo tónverkið.

Í eitt sinn sinnti sérhver einstaklingur fjölmörgum störfum. Flestir stunduðu svokallaðan sjálfsþurftarbúskap, mest allt sem þörf var á til heimilishalds var framleitt á búinu. Einn kostur við það fyrirkomulag var að flestir hlutu góða innsýn inn í velflest störf. Allir vissu hvernig lifrapylsan komst tilbúin í askinn. Frá a til ö, eða kannski er betra að segja frá sæðingu til suðu. Höfðu jafnvel tekið þátt í öllum verkþáttunum.

En nú er öldin önnur. Störf verða sérhæfðari með hverju árinu sem líður. Ávinningurinn af þessari þróun er augljós. Framlegð hefur stóraukist. Ókostirnir blasa hins vegar kannski ekki svo vel við.

Fyrst um sinn þegar Íslendingar fóru að keyra yfir Hellisheiði þurfti að stoppa áður en lagt var á Kambana og slípa ventla eins og það kallast. Þeir sem það handverk þekkja vita að hér er um að ræða töluvert mikla viðgerð á mótor ökutækis. Það þýddi ekkert í þá daga að gera ráð fyrir að geta ekið, með frábært hár, milli staða á fleygiferð án þess að gera hlé á akstri.

Sem betur fer er þetta breytt. Íslendingar hafa haft dug og þor til þess að byggja upp öflugt vegakerfi sem við getum ekið um óhindrað flesta daga ársins. Það má hins vegar ekki gleyma því, að við getum samt sem áður ekki gert ráð fyrir að geta „ávallt“ ekið óhindrað um vegi landsins.

Stundum þarf að sinna viðhaldi, það kemur fyrir. Það er mín ósk að þeir einstaklingar sem því sinna þurfi ekki að vera hugrakkar hetjur. Geti bara fyllt í holurnar eða lagað vegriðið án þess að bregða reglulega í brún þegar ekið er framhjá á ógnarhraða, sem, takið eftir, er kannski „bara“ 50, og ökumaðurinn stundum í símanum.

Það er vel skiljanlegt að margir ökumenn geri sér illa grein fyrir þeirri hættu sem þeir skapa með því að aka án þess að hægja nægjanlega vel á sér þegar ekið er í gegn um framkvæmdarsvæði. Já, og stundum þarf að stoppa og staldra við í örfáar mínútur.

Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi þriðjudaginn 7. mars þar sem öryggi við vegavinnu er til umfjöllunar. Vitundarátakið „Aktu varlega, mamma og pabbi vinna hér“ verður kynnt og flutt stutt erindi um reynslu fólks af því að starfa nálægt við þunga umferð. Einnig mun Samgöngustofa kynna forvarnarmyndband um akstur í gegnum vinnusvæði.

Ég ber mikla virðingu fyrir Stuðmönnum, en það má ekki vera á hundaraðogtíu, og það má verða of seinn. Nú eða bara gera ráð fyrir smá töfum og leggja fyrr af stað.

Komum heil heim.

Höfundur er öryggisstjóri Vegagerðarinnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×