Fótbolti

Albert Guð­munds: Verður að hafa sjálfs­traust og trúa á sjálfan þig

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Albert í leik gegn Inter en Ítalíumeistararnir eru sagðir ólmir vilja fá hann í sínar raðir.
Albert í leik gegn Inter en Ítalíumeistararnir eru sagðir ólmir vilja fá hann í sínar raðir. Francesco Scaccianoce/Getty Images

Fjölmiðillinn CBS hefur birt stutta heimildamynd um landsliðsmanninn Albert Guðmundsson og veru hans hjá Genoa. 

Hans helsta ráð til ungra iðkenda sem ætla sér langt í íþróttum er að hafa trú á sjálfum sér. Þá kemur Guðmundur Benediktsson, faðir Alberts, einnig við sögu en hann varð um stund frægari en sonur sinn þegar hann lýsti leikjum Íslands á EM 2016 í fótbolta.

 Í stuttmyndinni – sem sjá má neðar í greininni – fer hinn 26 ára gamli Albert yfir hvernig það er að alast upp á litla Íslandi en hann fluttist ungur að árum til Hollands þar sem hann samdi við Heerenveen.

„Það var ekki auðvelt að flytja erlendis aðeins 16 ára gamall en maður þarf að fórna einhverju til að upplifa drauminn,“ sagði Albert áður en ungir aðdáendur Genoa birtast og biðja hann um eiginhandaráritun.

Albert hefur leikið frábærlega með liðinu í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, á leiktíðinni eftir að hafa hjálpað liðinu upp úr Serie B á síðustu leiktíð. Hann segist hafa nægan tíma fyrir aðdáendur liðsins, og sína. Sérstaklega þá sem yngri eru þar sem hann var alveg eins sem krakki.

„Þegar stórar þjóðir komu að spila við Ísland var ég fyrir utan hótelið, ég var fyrir utan æfingasvæðið. Var að reyna fá myndir eða eiginhandaráritun.“

Í kjölfarið eru birtar myndir af Alberti með leikmönnum á borð við Arjen Robben og Robin van Persie þegar íslenski landsliðsmaðurinn var enn bara krakki.

Genoa er sérstakur staður 

Albert gekk í raðir Genoa í janúar 2022 þegar fall úr Serie A blasti við. Hann fór niður með liðinu, hjálpaði því upp og hefur svo blómstrað á yfirstandandi leiktíð. Alls hefur hann skorað 14 mörk og gefið 3 stoðsendingar í 32 leikjum. Þá hefur landsliðsmaðurinn verið orðaður við fjölda stórliða á Ítalíu.

„Það er sérstakt að vera hér. Eftir að við höfðum fagnað því að komast aftur upp í Serie A vantaði mig far heim, það var stuðningsmaður með vespu og aukahjálm svo hann keyrði mig heim. Það var falleg ástarsaga.“

Albert Guðmundsson er sannkallaður lykilmaður í liði Genoa.Getty/Timothy Rogers

Væri í NBA ef hann væri nægilega hávaxinn

Albert segist elska körfubolta. Hann hafi spilað hann lengi vel en sé hins vegar ekki nægilega stór.

„Kobe Bryant og Allen Iverson voru átrúnaðargoð mín í körfubolta. Ef ég hefði hæðina væri ég án efa að spila í NBA-deildinni.“

Alert lærir í kjölfarið að gera eigið pasta en þar á eftir snýr umræðan að föður hans, betur þekktum sem Gumma Ben. Segja má að hann hafi lýst leikjum Íslands á EM 2016 af mikilli innlifun.

„Það var magnað, pabbi var að lýsa leikjunum á EM – og gerir enn. Það var mjög fyndið að hlusta á hann ganga af göflunum í sjónvarpinu. Þegar ég hugsa til baka þá var það mjög gaman,“ segir Albert á meðan myndband af Gumma Ben að svo gott sem missa röddina er spilað.

Dreymdi um að spila á Englandi en nú er tíðin önnur 

„Ef ég ætti að gefa ráð til ungra krakka sem eru að elta drauminn þá er það að hafa alltaf trú. Sjálfstraust er mjög mikilvægt, það er fólk sem mun reyna að brjóta þig niður en þú verður að trúa á sjálfan þig. Það væri mitt ráð til þeirra.“

„Þegar ég var krakki dreymdi mig um að spila í ensku úrvalsdeildinni en síðan ég flutti til Ítalíu hefur það breyst þar sem mér líkar við landið, deildina, fótboltann og lífið. Ég er ekki æstur að flytja frá Ítalíu ef ég á að vera hreinskilinn. Ef ég þarf að yfirgefa félagið og landið þyrfti það að vera eitthvað gott því mér líður vel hér,“ segir Albert að endingu.


Tengdar fréttir

Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum

Nýkrýndir Ítalíumeistarar Inter eru með Albert Guðmundsson í sigtinu og stjórnandi hjá félaginu viðurkennir áhuga. Inter gæti hins vegar þurft að ná góðri sölu til að hafa efni á Alberti.

Segir von á mikil­vægum til­boðum í Albert

Fé­lags­skipta­sér­fræðingurinn Fabrizio Roma­no segir frá því í morgun í færslu á sam­fé­lags­miðlinum X að for­ráða­menn Genoa búist við nokkrum til­boðum frá öðrum fé­lögum í ís­lenska lands­liðs­manninn Albert Guð­munds­son, sem farið hefur á kostum bæði með liði Genoa og nú síðustu daga með ís­lenska lands­liðinu.

ESPN: Á­hugi á Alberti í ensku úr­vals­deildinni

Lengi hefur stefnt í kapphlaup á milli ítölsku stórliðanna Juventus og Internazionale um íslenska landsliðsmanninn Albert Guðmundsson en nú eru að koma út fréttir um áhuga á honum norðar í álfunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×