Sport

„Mætum til Eyja á mið­viku­daginn til þess að loka þessu“

Andri Már Eggertsson skrifar
Það var líf á varamannabekk FH í kvöld
Það var líf á varamannabekk FH í kvöld Vísir/Hulda Margrét

FH misnotaði tækifærið til að tryggja sér farseðilinn í úrslitin en liðið tapaði gegn ÍBV 28-29. FH er 2-1 yfir í einvíginu. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var svekktur eftir tap kvöldsins.

„Þetta var jafn leikur eins og við mátti búast. Í 40 mínútur fannst mér mikið vanta upp á en ég var ánægður með karakterinn og hvernig við komum okkur í góða stöðu en það var því miður ekki nóg í dag.“

„Þetta er úrslitakeppnin og staðan er 2-1 fyrir okkur og við mætum til Eyja á miðvikudaginn til þess að loka þessu,“ sagði Sigursteinn Arndal í samtali við Vísi eftir leik.

FH var einu marki yfir í hálfleik og þrátt fyrir að augnablikið hafi verið með ÍBV í hálfleik fannst Sigursteini það ekki skipta máli.

„Svona leikir eru fullir af augnablikum og það voru önnur augnablik fyrir okkur í þessum leik og svona eru bara þessir leikir.“

Um miðjan síðari hálfleik fór að ganga betur hjá FH og að mati Sigursteins var varnarleikur liðsins betri síðasta korterið.

„Við náðum öflugum varnarleik og fengum auðveldari mörk. Við náðum þarna góðum kafla sérstaklega varnarlega.“

FH var tveimur mörkum yfir og með pálmann í höndunum þegar tæplega þrjár mínútur voru eftir og Sigursteinn var ekki ánægður með hvernig liðið gaf þá forystu frá sér.

„Við vorum ósáttir við að vera tveimur mörkum yfir þegar að þrjár mínútur voru eftir og ná ekki að loka þessu með sigri. Það er eitthvað sem við þurfum að fara yfir og gera betur í næsta leik.“

Jakob Martin Ásgeirsson, leikmaður FH, fékk beint rautt spjald í seinni hálfleik en Sigursteinn sagðist ekki hafa séð atvikið nógu vel.

„Dómararnir voru vissir í sinni sök og ég sá þetta ekki nógu vel og við verðum að treysta því að dómararnir hafi rétt fyrir sér,“ sagði Sigursteinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×