Innlent

Langt í að þeir nái sér að fullu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Zak Nelson telur það kraftaverk að hann og unnusti hans séu á lífi. Við hittum hann á setustofu sjúklinga á Landspítalanum, þar sem hann hefur varið nær öllum sínum tíma síðustu viku.
Zak Nelson telur það kraftaverk að hann og unnusti hans séu á lífi. Við hittum hann á setustofu sjúklinga á Landspítalanum, þar sem hann hefur varið nær öllum sínum tíma síðustu viku. Vísir/Dúi

Ferðamenn sem voru hætt komnir eftir harðan árekstur á þjóðvegi 1 við Hellu um síðustu helgi telja bílbeltin hafa bjargað lífi þeirra. Bíllinn sem þeir voru á gjöreyðilagðist í árekstrinum og annar ferðamannanna liggur enn talsvert þungt haldinn á Landspítalanum.

Zak Nelson og Elliot kærasti hans lentu á Íslandi snemma morguns föstudagsins 19. apríl. Þeir biðu ekki boðanna; náðu í bílaleigubíl og hófu ferðalag sitt. Stefnan var tekin á Suðurlandið. Þeir skoðuðu Strokk og Kerið, fengu sér pylsu og voru á leið á gististað sinn síðdegis þegar ósköpin dundu yfir. Á þjóðveginum rétt vestan við Hellu lentu þeir í harkalegum árekstri.

„Allt í einu birtist bíll á minni akrein. Röð bíla kom á móti okkur og einn úr röðinni kom yfir á minn vegarhelming. Ég náði ekki að bregðast við, ég var á níutíu kílómetra hraða, hámarkshraða. Og...“ segir Zak og líkir eftir árekstri með látbragði, þar sem hann ræðir við fréttamann á setustofu sjúklinga á þriðju hæð á Landspítalanum við Hringbraut.

„Ég heyri Elliot gráta lágt. Og ég er vankaður, við vorum á hliðinni þarna.“

Bíllinn sem Elliott og Zak voru á gjöreyðilagðist við áreksturinn. Þeir voru báðir fluttir með hraði á Landspítalann í Reykjavík. Þar kom í ljós að Elliott hafði slasast alvarlega, hlotið innvortis blæðingar, og var sendur í bráðaaðgerð þá og þegar. En rétt áður náði hann að bera upp mikilvæga spurningu.

„Okkur var rúllað saman í rúmunum og hann lá þarna og ég brast í grát. Hann sneri sér að mér og sagði: Viltu giftast mér? Þarna á gjörgæslunni. Og ég svaraði: Já! Auðvitað!“

Zak og Elliot trúlofuðu sig á gjörgæslu Landspítalans.

Við tók erfið bið eftir því að Elliot kæmi úr aðgerðinni og því mikill léttir þegar í ljós kom að hún hafði gengið vel. Elliot liggur þó enn á Landspítalanum og ekki er útlit fyrir að hann verði útskrifaður fyrr en eftir eina til tvær vikur.

„Ég var heppinn, marðist bara illa. Bílbeltið stóð fyrir sínu.“

Heldurðu að bílbeltið hafi bjargað ykkur?

„Já. Marblettirnir voru afleiðing bílbeltisins en það blasir við að ef þess hefði ekki notið við væri ég ekki hér. Mjög margir hér á spítalanum hafa sagt okkur að við séum heppnir að vera enn á lífi.“

Áður en lagt var af stað í ferðina örlagaríku.

Zak segir starfsfólk Landspítalans hafa reynst þeim ómetanlegt. Hann sé því óendanlega þakklátur fyrir að hafa bjargað ástinni í lífi hans.

„Þú getur ekki vitað hvað ást er fyrr en tiltekna manneskju rekur á fjörur þínar. Elliot er sú manneskja. Og að halda að þú gætir misst hana er hryllilegt. Við eigum langan veg fyrir höndum. Ég held að það sé nokkuð langt í að við náum okkur að fullu andlega.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×