Fyrrum aðstoðarkona kærir Dennis Rodman fyrir líkamsárás Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. apríl 2024 20:00 Dennis Rodman er ekki ókunnugur því að komast í kast við lögin. Vísir/Getty Dennis Rodman, fyrrum NBA stjarna og margfaldur meistari, var kærður af fyrrum starfsmanni sínum fyrir líkamsárás.
Konan sem kærir Rodman var ráðin til starfa sem aðstoðar- og listakona fjölskyldu Rodman. Hún ásakar Rodman um að hafa skellt bílhurð á hönd sína og slasað hana alvarlega. Í kærunni kemur fram að Rodman hafi boðið konunni að búa heima hjá sér og starfa fyrir fjölskylduna. Heimilinu var lýst sem erfiðu vinnuumhverfi þar sem Rodman hellti sér ítrekað yfir hana, vakti hana á nóttunni og öskraði margsinnis að ástæðulaustu. Þolinmæðin var því algjörlega á þrotum þegar Rodman skellti bílhurð á hönd hennar. Konan segist hafa orðið fyrir varanlegum taugaskaða og krefst 1 milljón dollara í skaðabætur. Lögfræðingurinn Tony Buzbee lagði fram kæruna fyrir hönd konunnar, nafns hennar var ekki getið. Buzbee gerði garðinn frægan í máli sem hann vann fyrir hönd fjölda kvenna gegn fyrrum NFL stjörnunni Deshaun Watson. Rodman hefur ekki gefið út yfirlýsingu vegna málsins en The Guardian greinir frá því að önnur aðstoðarkona hafi svarað síma hans, sagt þetta algjöran þvætting og peningaplokk. Þetta er auðvitað ekki í fyrsta sinn sem hegðun Rodman hneykslar, hvort sem það er utan vallar eða innan. Undanfarin ár hefur hann opinskátt greint frá andlegum veikindum sínum og baráttunni við eiturlyfjafíkn.
NBA Mest lesið „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Íslenski boltinn KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Íslenski boltinn Lést í fyrsta bardaga sínum Sport Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Fótbolti Oddaleikur Grindavíkur og Keflavíkur í kvöld: Basile og Kane á toppnum Körfubolti Fernandes íhugar að stökkva frá borði Enski boltinn Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Enski boltinn Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Enski boltinn Svona verður oddaleikjaveislan á Stöð 2 Sport í kvöld Körfubolti Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Keflavík | Oddaleikur í Smáranum Oddaleikur Vals og Njarðvíkur: Frákastakóngar liðanna skila mestu Oddaleikur Grindavíkur og Keflavíkur í kvöld: Basile og Kane á toppnum Svona verður oddaleikjaveislan á Stöð 2 Sport í kvöld „Þetta var rosalega heimsk villa hjá mér í endann“ Þruman jafnaði með góðum endaspretti og Boston einum sigri frá úrslitum Austursins „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Keflavíkurkonur hafa aldrei tapað oddaleik á heimavelli Fyrsta skiptið í úrslitakeppninni eftir „Guð blessi Ísland“ „Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“ „Vonandi gerir hann aftur eitthvað svona heimskulegt“ Utan vallar: Mótlæti smakkast vel í Keflavík Murray með ótrúlega flautukörfu fyrir aftan miðju er Denver jafnaði ÍR-ingar stoppuðu stutt alveg eins og KR: Komnir upp í Subway Atlanta Hawks fá fyrsta valrétt í nýliðavalinu Indiana Pacers jöfnuðu einvígið gegn Knicks „Verður gönguferð í garðinum fyrir þá“ „Allt þetta umtal um hvernig hann hagar sér er orðið þreytt“ Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik Martin sendi Crailsheim niður og endaði einum sigri á eftir Bayern Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix „Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“ „Þetta eru leikirnir sem að maður vill spila“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 91-88 | Heimamenn knúðu fram oddaleik Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Martin og félagar skelltu í lás gegn Bæjurum Sjá meira