Innlent

Gjald­taka hefst á bíla­stæðum HÍ í haust

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Tekið verður gjald alla virka daga milli átta og fjögur.
Tekið verður gjald alla virka daga milli átta og fjögur. Vísir/Vilhelm

Gjaldtaka mun hefjast á bílastæðum við Háskóla Íslands í haust. Gjald verður tekið fyrir notkun bílastæða milli átta og fjögur á virkum dögum og verður bílastæðum skipt í tvö gjaldsvæði.

Þetta kemur fram í tilkynningu á síðu Háskóla Íslands. Þar kemur fram að gjaldtakan sé fyrsta skrefið í átt að því að bæta umferð og umhverfi á háskólasvæðinu.

Breytingin tekur gildi fyrsta september í ár og segir Háskólinn í tilkynningunni að gjaldtöku verði stillt í hóf.

Eins og fram kom verður bílastæðum skipt í tvö svæði: P2 og P3. Á völdum stæðum næst byggingum verður alltaf tekið gjald líkt og hefur verið gert í Skeifunni við Aðalbygginguna og við Gimli. Þeim stæðum verður fjölgað og verða þau rúmlega 200 af þeim um 1700 bílastæðum sem eru á háskólasvæðinu.

Önnur stæði verða í gjaldflokki P3 og þar verður einnig tekið almennt gjald en nemendur og starfsfólk munu geta skráð bíla sína til að fá heimild til að leggja í þau stæði án annarrar þóknunar en „hóflegs skráningargjalds,.“

Bílastæðunum verður skipt í tvö gjaldsvæði.Háskóli Íslands

Handhöfum stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða verður eftir sem áður heimilt að leggja ökutæki í gjaldskylt bílastæði án sérstakarar greiðslu.

„Haft hefur verið náið samráð við Landspítalann og aðrar nágrannastofnanir við undirbúning málsins og verður þess m.a. gætt að nemendur og starfsfólk í heilbrigðisgreinum, sem eiga erindi bæði á lóð Háskóla Íslands og Landspítalans, greiði ekki tvisvar skv. gjaldflokki P3,“ stendur í tilkynningunni.

Þar segir einnig að verkefnið sé fyrsta skref HÍ í að hvetja fólk til að ferðast til og frá háskólasvæðinu með vistvænum hætti og að það sé jákvætt framlag til öruggari og umhverfisvænni umferðar við Háskóla Íslands.

„Samhliða innleiðingunni er unnið markvisst að uppbyggingu vistvænna samgöngumáta, s.s. með gerð hjólaskýla og annarrar aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Þá er áætlað að fyrsti leggur Borgarlínu muni liggja um háskólasvæðið og verði tekin í gagnið innan fárra ára.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×